29.10.2019 Vaktmaður fasteignar Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða til starfa vaktmann fasteignar skólans. Starf vaktmanns felst í daglegri umsjón á húseign og lóð skólans í samstarfi við húsvörð. Vinnutími vaktmanns er frá klukkan 13 til 19 alla virka daga. Hæfnikröfur: · Þekking á framkvæmdum og viðhaldi. · Reynsla sem nýtist í starfi. · Hæfni í mannlegum samskiptum. · Sjálfstæði í vinnubrögðum. · Almenn tölvukunnátta. Við bjóðum: · Góða vinnuaðstöðu. · Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað. Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen starfsmanna- og þróunarstjóri gunninga@verslo.is eða í síma 5 900 600. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið gunninga@verslo.is Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 940 nemendur. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.