16.04.2026 Vel heppnaður Umhverfisdagur Þátttaka nemenda var góð á Umhverfisdegi Verzlunarskóla Íslands. Þrátt fyrir smá rigningu létu nemendur það ekki hafa áhrif á sig og sinntu verkefnum af dugnaði og samviskusemi. Skólalóðin er snyrtileg eftir tiltektina. Að lokum var öllum boðið upp á ljúffengt bakkelsi. Við þökkum nemendum og starfsfólki kærlega fyrir góða þátttöku og þeirra framlag til að gera daginn bæði árangursríkan og ánægjulegan.