Verzlingar í sumarnámi við Cambridge University

Hópur nemenda úr Verzlunarskóla Íslands tók í sumar þátt í níu daga námskeiði í Cambridge ásamt nemendum frá öðrum framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er í annað sinn sem nemendum skólans býðst að taka þátt í þessu vel skipulagða og lærdómsríka námskeiði.

Námskeiðið bar yfirheitið The Uncomfortable Journey og markmið þess var að hvetja þátttakendur til að stíga út fyrir þægindarammann, takast á við nýjar áskoranir og efla sjálfstraust og leiðtogahæfni.

Nemendur bjuggu á stúdentagörðum Peterhouse College og Corpus Christi College og fengu þannig innsýn í líf háskólanema í einni þekktustu háskólaborg heims. Þeir unnu krefjandi hópverkefni undir leiðsögn leiðbeinenda, meðal annars doktorsnemum frá Cambridge University.

Dagskráin var þétt skipuð frá morgni til kvölds með vinnustofum, fyrirlestrum, hópastarfi og kvöldviðburðum. Mikil áhersla var lögð á að nemendur settu sér persónuleg markmið og ynnu markvisst að þeim í hópum undir leiðsögn leiðbeinenda sinna.

Ferlinu lauk með lokakynningum þar sem hóparnir kynntu verkefni sín og lausnir. Nemendur fengu einnig tækifæri til að kynnast Cambridge, meðal annars með róðri á ánni Cam, viðburðum og formlegum lokakvöldverði þar sem þeir fengu viðurkenningar og umsagnir frá leiðbeinendum sínum.

„Hið óþægilega ferðalag“ veitti nemendum dýrmæta innsýn í alþjóðlegt námsumhverfi og reynslu sem nýtist þeim áfram í námi og skólastarfi í Verzló.

Vonir standa til að nemendum skólans bjóðist aftur að taka þátt í námskeiðinu næsta sumar og verður það auglýst nánar þegar þar að kemur.

Aðrar fréttir