Verzló og Gallup í nýju samstarfi um styrkleika nemenda

Verzlunarskóli Íslands hefur hafið spennandi samstarf við Gallup á Íslandi og Gallup Inc. um nýja styrkleikamiðaða nálgun í frumkvöðlafræði á lokaári. Markmiðið er að efla sjálfsþekkingu nemenda, styrkja teymisvinnu og undirbúa þá enn betur fyrir atvinnulífið og lífið eftir útskrift.

Nemendur á lokaári vinna að stofnun fyrirtækis í frumkvöðlafræði og í vetur verður CliftonStrengths-aðferðafræði Gallup í fyrsta sinn fléttuð inn í námið. Nemendur taka CliftonStrengths-mat, fá persónulega styrkleikaskýrslu og einstaklingssamtal við vottaðan Gallup-styrkleikaþjálfara áður en teymisvinnan hefst.

Með verkefninu fá nemendur tækifæri til að kynnast eigin styrkleikum betur, skilja framlag sitt í teymisvinnu og læra að meta ólíka styrkleika samnemenda. Þannig fá þeir jafnframt annað sjónarhorn á eigin hæfni og möguleika en það sem hefðbundnar námsmælingar og einkunnir gefa.

Verkefnið er mikilvægt þróunarskref fyrir bæði Verzlunarskólann og Gallup og getur skapað verðmæta reynslu af notkun styrkleikamiðaðrar nálgunar í íslensku framhaldsskólastarfi. Dagný Bolladóttir, Gallup-vottaður styrkleikaþjálfari, leiðir verkefnið af hálfu Gallup með stuðningi frá Gallup Inc.

Meginmarkmiðið er þó ávinningur nemendanna sjálfra: að þeir ljúki verkefninu með aukna sjálfsþekkingu, betri skilning á eigin styrkleikum og sterkari verkfæri til að takast á við nám, samstarf og atvinnulíf að lokinni skólagöngu.

Aðrar fréttir