11.09.2026 Verzlunarskólanemar í spænskunámi í Santiago de Compostela Dagana 31. ágúst til 4. september sóttu þrír nemendur frá Verzló, Arnór Snær Hauksson (2-X), Eysteinn Daði Hjaltason (2-X) og Mikael Bjarki Heiðarsson (2-X), spænskunámskeið við Háskólann í Santiago de Compostela (USC) í Galisíu á Spáni. Nemendurnir hlutu námsstyrk frá háskólanum eftir að hafa verið í einum af sigurhópunum í myndbandakeppni sem haldin var á Spænskuhátíðinni á Íslandi 2026. Styrkurinn fól í sér vikulangt spænskunámskeið við USC, hálft fæði og gistingu á stúdentagörðum háskólans. Á meðan á dvölinni stóð fengu nemendurnir tækifæri til að efla spænskukunnáttu sína, kynnast galisískri og spænskri menningu og sögu og ekki síst æfa sig í að nota tungumálið í daglegu lífi.