Verzlunarskóli Íslands fær nýtt útlit

Nú standa yfir viðamiklar endurbætur á skólabyggingu Verzlunarskóla Íslands þar sem húsið verður endursteinað með gráum tónum og öllum gluggum skipt út. Þessar breytingar færa Verzlunarskólanum nýja ásýnd og meira flæði og tenging myndast við viðbyggingu skólans.

 

Um þessar mundir er verið að skipta um alla glugga sem getur þýtt örlítið rask og truflun í kennslustofum. Tekin er ein kennslustofa á dag og flyst sá bekkur í stofu 101 rétt á meðan gluggaskiptin fara fram. Til þessa hafa framkvæmdir gengið ljómandi vel og nemendur og kennarar skilningsríkir og samstarfsfúsir.

Nemendainngangurinn fær yfirhalningu með bættu aðgengi fyrir hreyfihamlaða ásamt notalegu útisvæði með bekkjum þar sem nemendur geta notið sólarinnar á góðviðrisdögum. Aðalinngangur skólans (A) (beint á móti Borgarleikhúsinu) fær einnig breytt útlit og að lokum verður útilýsing í kringum skólann bætt til muna.

Aðrar fréttir