Verzlunarskóli Íslands hlýtur Grænfánann í fimmta sinn

Mánudaginn 18. maí kl. 10.00 mun Verzlunarskóli Íslands taka á móti Grænfánanum í fimmta sinn, en Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning á góðum árangri í umhverfismálum. Í tilefni dagsins verður fáninn dreginn að húni við nemendastæðin, nánar tiltekið við inngang C.
Við erum stolt af því að taka á móti Grænfánanum í fimmta sinn og hvetjum nemendur eindregið til að mæta.

 

Aðrar fréttir