18.08.2025 Verzlunarskólinn settur í 121. skipti Verzlunarskóli Íslands var settur í dag, mánudaginn 18. ágúst, í 121. skipti. Nýnemar fengu hlýjar móttökur frá stjórnendum og starfsfólki skólans og voru boðnir velkomnir inn í skólasamfélagið. Alls eru nýnemar 386 talsins, skipaðir í 14 bekki, en heildarnemendafjöldi skólans í vetur verður 1120. Á dagskrá skólasetningarinnar var m.a. kynning í Bláa salnum, þar sem nýnemar fengu gagnlegar upplýsingar um námið, félagslífið og öllu því helsta sem tengist skólanum. Að lokinni kynningu voru bekkirnir kallaðir upp á svið og fylgdu nemendur umsjónarkennurum sínum í myndatöku og heimsóttu heimastofur sínar. Óhætt er að segja að mikil gleði og eftirvænting hafi verið meðal nemenda. Að lokinni hátíðlegri stund í Bláa salnum lýsti skólastjóri því formlega yfir að Verzlunarskóli Íslands væri settur í 121. skipti – og markaði það upphafið að nýju og viðburðaríku skólaári. Kennsla hefst á morgun þriðjudaginn 19. ágúst samkvæmt stundatöflu. Nemendur eru jafnframt minntir á bóksöluna sem fram fer á bókasafni skólans.