Verzlunarskólinn settur í 122. skipti

Það var líf og fjör í Verzló í dag þegar 386 nýnemar mættu til leiks og hófu þar með formlega skólagöngu sína við skólann. Nýnemarnir skipa 14 bekki og í vetur verða alls 1.125 nemendur við skólann.

Nýnemadagurinn hófst með samveru í Bláa sal þar sem nemendur voru boðnir velkomnir í skólasamfélagið og fengu ýmsar mikilvægar upplýsingar um námið og skólastarfið fram undan. Að því loknu tóku umsjónarkennarar við sínum bekkjum og nemendur fóru meðal annars í myndatöku, fengu úthlutað sæti í heimastofum og kynntust húsinu í gönguferð um skólann. Tölvuaðstoð var einnig í boði á Marmaranum svo allir gætu verið tilbúnir fyrir fyrsta kennsludaginn.

Með komu nýnemanna var Verzlunarskóli Íslands formlega settur í 122. sinn. Kennsla samkvæmt stundatöflu hefst á morgun. Nemendur eru jafnframt minntir á bóksöluna sem fram fer á bókasafni skólans.

Aðrar fréttir