18.05.2026 Verzlunarskólinn tekur við Grænfánanum Í dag tók Verzlunarskóli Íslands við Grænfánanum í fimmta sinn. Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning fyrir árangursríkt starf í þágu umhverfisins. Fyrir hönd skólans tóku fulltrúar nemenda í umhverfisnefnd, Þorkell Diego, Margrét Auðunsdóttir og Rut Tómasdóttir, við fánanum úr hendi Sigurlaugar Arnardóttur, verkefnastjóra menntateymis Landverndar. Að athöfn lokinni var fáninn dreginn að húni í glampandi vorsólinni sem lék við gesti á þessum fallega degi. Nemendur í umhverfisnefndinni hafa unnið afar öflugt starf á skólaárinu. Þeir stóðu meðal annars fyrir umhverfisdegi VÍ þann 15. apríl þar sem nemendur skólans fóru út og hreinsuðu skólalóðina og var þátttakan mjög góð. Þá setti nefndin einnig upp skiptibókamarkað og hafði frumkvæði að samstarfi við fyrirtækið Hopp sem leiddi til þess að Hopp-stöð var sett upp á skólalóðinni. Að fá Grænfánann í fimmta sinn er staðfesting á því að markvisst og árangursríkt starf hefur átt sér stað á undanförnum árum. Um leið er það hvatning til að halda áfram að efla sjálfbærni, umhverfisvitund og samfélagslega ábyrgð í anda Umhverfisstefnu Verzlunarskóla Íslands.