14.10.2026 Verzlunarskólinn tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 Þróunarverkefnið Samkennd og sjálfræði í Verzlunarskóla Íslands hefur verið tilnefnt til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 í flokki þróunarverkefna. Verkefnið felst í því að nemendur á fyrsta ári vinna saman í hópum að því að láta gott af sér leiða í samfélaginu. Markmið verkefnisins er að nemendur læri að setja sig í spor annarra, sýni samkennd og geri sér betur grein fyrir ábyrgð sinni í samfélaginu. Nýlega birtist grein í veftímaritinu Skólaþráðum undir yfirskriftinni Við fórum út með bros á vör og hlýju í hjarta. Þar fjalla Ásta Henriksen, Benedikt Ingi Ásgeirsson, Berta Gerður Guðmundsdóttir og Guðrún Inga Sívertsen um verkefnið, aðdraganda þess og hvernig það hefur gengið. Við óskum öllum sem komið hafa að verkefninu innilega til hamingju með tilnefninguna! Nánari upplýsingar: „Við fórum út með bros á vör og hlýju í hjarta“ – grein í Skólaþráðum Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026