27.04.2026 Vettvangsferð í jarðfræði Nemendur í jarðfræði í 1‑Y og 1-X fóru í vettvangsferð um Reykjanesið. Veðrið lék við hópinn með einstakri vorblíðu, sem gerði nemendum kleift að njóta þess að skoða fjölbreytta náttúru svæðisins og kynnast undrum jarðfræðinnar. Áningastaðir ferðarinnar voru Reykjanestá, Grindavík, Nátthagi og Seltún við Krýsuvík. Þar fengu nemendur að kynnast ummerkjum mismunandi gerða eldgosavirkni frá ólíkum tímum jarðsögunnar. Nemendur létu sérstaklega vel af ferðinni og sögðu jarðfræðivettvangsferðina mun skemmtilegri og lærdómsríkari en hefðbundna kennslutíma í skólastofunni.