VÍ-mr dagurinn í dag

 

Í dag föstudaginn, 7. október, munu nemendur Verzlunarskólans etja kappi við nemendur Menntaskólans í Reykjavík á svokölluðum VÍ-mr degi (sem MR-ingar kalla MR-ví daginn).

Þessi dagur á sér orðið tveggja áratuga sögu en upphaf hans má rekja til mikils rígs á milli skólanna, sérstaklega þegar VÍ var við Grundarstíg. Til þess að ná tökum á þessum ríg og viðhalda honum eftir að VÍ flutti í Ofanleitið ákváðu nemendafélög skólanna að virkja hann í þágu skemmtanagildis.

Samkvæmt hefð munu nemendur skólanna mætast í keppni og þrautum í Hljómskólagarðinum um klukkan 15:00. Hápunktur dagsins er ræðu-keppni sem fram fer í Bláa salnum hér í Verzló klukkan 20:00 (húsið verður opnað 19:00). Með henni lýkur formlegri dagskrá á vegum skólanna og er rétt að ítreka að engar frekari skemmtanir eða veisluhöld eru á ábyrgð nemendafélagsins eða skólans.

 

"verslo"  "mr1"

Aðrar fréttir