15.04.2026 Vörumessa Ungra frumkvöðla í Smáralind Um helgina, 17.–18. apríl, fer fram vörumessa Ungra frumkvöðla í Smáralind. Að þessu sinni taka 16 framhaldsskólar þátt. Frá Verzlunarskóla Íslands verða 42 nemendafyrirtæki á staðnum sem kynna vörur sínar laugardaginn 18. apríl. Vörumessan er hluti af frumkvöðlaáfanga sem nemendur á viðskiptabraut og nýsköpunar- og listabraut taka á lokaári sínu. Við hvetjum alla til að koma við í Smáralindinni á laugardaginn og kynna sér skapandi og spennandi verkefni nemenda.