Lögfræði

Inngangur um helstu grunnatriði lögfræðinnar, fræðikerfi hennar, réttarheimildir o.fl.
Umfjöllun um stjórnskipun og stjórnarfar og meðferð mála hjá stjórnsýsluaðilum.

Réttarfar

  • Dómstólaskipanin á Íslandi.
  • Meðferð einkamáls útskýrð og grunnreglur einkamálaréttarfarsins.
  • Farið er í mun á opinberum málum og einkamálum, sönnun rædd.
  • Farið er yfir helstu atriði aðfarargerða, nauðungarsölu og gjaldþrotaskipti.
  • Reglur laga um samningsbundna gerðardóma.

Samningaréttur

  • Gerð er grein fyrir reglum um rétthæfi og gerhæfi.
  • Farið er yfir stofnun löggerninga, umboð og milligöngu við samningsgerð.
  • Umfjöllun um ógilda löggerninga.

Kröfuréttur

  • Farið er yfir helstu meginreglur kröfuréttarins, þ.e. örlög löggerninga.
  • Sérstök umfjöllun um viðskiptabréfakröfur, veðrétt og reglur um ábyrgð á fjárskuldbindingum 3ja manns.
  • Réttarreglur um lausafjárkaup,þjónustukaup og fasteignaviðskipti.

Umfjöllun um stofnun og slit hjúskapar, óvígða sambúð og staðfesta samvist.

  • Barnaréttur m.a. feðrun barna og móðerni.
  • Erfðir, lögerfðir og bréferfðir.
  • Fjármál einstaklinga, rekstur heimilis.
  • Sparnaður og lán.
  • Helstu réttindi og skyldur aðila vinnumarkaðarins.
  • Félög og skattar, félagafrelsi, stofnun félags.