Vélritun

Áfangalýsing Vélritun 101 er ætlaður byrjendum í vélritun og inniheldur hann fjórar lotur, eða Verk001 til Verk022. Nemendur taka stöðupróf í byrjun áfanga og geta lokið áfanganum ef þeir ná viðunandi einkunn. Í áfanganum er farið í hnappaborðið, byrjað er á léttum fingraæfingum og æfingar þyngdar smátt og smátt. Í síðustu tveim verkefnunum í 4. lotu er farið sérstaklega í merki og tölur. Hraðapróf (lotupróf og lokapróf) eru fimm mínútna próf sem tekin eru tvisvar sinnum og gildir hið betra. Einkunn sem gefin er fyrir hraðapróf fer eftir fjölda orða á mínútu að frádregnum villum. Lotupróf eru tekin í lok hverrar lotu, til að meta stöðu nemanda. Farið er línulega í gegnum áfangann, frá fyrsta verkefni að lokaprófi. Einnig eru í áfanganum leiðbeiningar og skýringar við þá þætti námsefnisins þar sem þörf er á. Þennan hluta námsefnisins eiga nemendur að lesa vel og fylgja þeim leiðbeiningum sem þar koma fram. Í því augnamiði að stuðla að því að nemendur tileinki sér réttar vinnustellingar og vinnuferli, er leiðbeiningum skotið inn með reglulegu millibili í námsferlinu. Þar er leiðbeint um réttar vinnu-stellingar og hléæfingar sem gott er að gera til að koma í veg fyrir þreytu, bakverki og aðra óæskilega fylgikvilla við tölvuvinnu.

Haft var að leiðarljósi við textagerð:

  • Að nemendur læri smátt og smátt á allt hnappaborðið og að æfingar séu einfaldar framan af en þyngist smátt og smátt.
  • Að nemendur læri á allt hnappaborðið með því að vélrita á fleiri tungumálum en íslensku, svo sem ensku, þýsku, dönsku, spænsku, frönsku og latínu.
  • Að æfingarnar innihaldi spakmæli og orðtök á fyrrnefndum tungumálum.
  • Að nemendur æfi stafsetningu, bæði í íslenskum og erlendum tungumálum, um leið og þeir læra vélritun.
  • Að æfingar séu jákvæðar og fræðandi.
  • Að í námsefninu sé góð framvindustýring þar sem nemendur taka próf eftir hverja lotu og bæði nemendur og kennarar geti fylgst með framvindunni.

Markmið:

  • Að nemendur læri rétta fingrasetningu.
  • Að nemendur noti blindskrift.
  • Að nemendur vélriti með jöfnum áslætti.
  • Að nemendur nái lágmarkseinkunn 5 á lokaprófi.