Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Mættir: Guðrún Inga Sívertsen, Katrín Jónsdóttir, Elísabet Halldórsdóttir, Arna Eir Unudóttir Rúnarsdóttir (formaður hagsmunráðs), Jón Kristófer Ólason (forseti NFVÍ) og Þorkell H. Diego sem ritar jafnframt fundargerð. Gylfi Hafsteinsson
Dagskrá fundar:
– Hlutverk skólaráðs – Próftafla haustannar – Skólareglur – Önnur mál
– Hlutverk skólaráðs. GIS býður fundargesti velkomna og fer yfir hlutverk skólaráðs, hvernig mál koma inn á borð ráðsins og hvernig þau eru rædd og afgreidd eftir atvikum.
– Próftafla haustannar. Gylfi Hafsteinsson kemur á fundinn og leggur fram drög að próftöflu. Fer yfir helstu markmið hennar og hvernig hún er byggð upp. Hagsmunaráð nemenda fær drögin í hendur í kjölfarið og kynnir samnemendum, taka við ábendingum og koma þeim á framfæri við GH.
– Skólareglur. GIS fer yfir skólareglur með hagsmunaráði og stoppar sérstaklega við reglu 3.4. Sú regla er rædd og farið yfir tilgang hennar og markmið. Einnig var farið yfir nýja uppsetningu á reglum og hvað vakti fyrir stjórnendum við endurskoðunina.
– Önnur mál. GIS óskar eftir að nemendur aðstoði við að kynna teyjudaginn, sem er góðgerðardagur. Fulltrúar nemenda telja það sjálfsagt og eru reiðubúin að leggja sitt af mörkum.
Rætt var um það fyrirkomulag að treilarar og annað myndefni sé eingöngu sýnt á Marmaranum. Fulltrúar nemenda sjá ekki annað en að enn sem komið er sé reynslan góð en eru ekki alveg sammála því að allir viðburður á þeirra vegum fari fram þar, t.d. málfundir og rökræður. Undir þetta tekur KJ og minnist þá á söngstundina sem virðist ekki ganga nógu vel þegar hún hefur farið fram á Marmaranum.
Fulltrúar nemenda biðja um útskýringar á þeim breytingum sem hafa átt sér stað í Matbúð og þá sérstaklega því að Matarkort geta bara borgað fyrir heitan mat, ekki aðrar vörur sem standa til boða. GIS útskýrði hlið skólans og nefndi meðal annars að það sé óheppilegt að ekki sé hægt að greina hversu margir nemendur kaupi í raun heitan mat með matarkortum sínum því svo margir noti þau til að kaupa annað.
Fundi slitið kl. 13:00