Ársskýrsla 2025-2026

Ársskýrsla Foreldraráðs
Veturinn 2025-2026

Lögð fram á aðalfundi 7. október 2026.

Aðalfundur Foreldraráðs Verzlunarskóla Íslands var haldinn miðvikudaginn 7. október 2026, Margrét Ármann var fundarstjóri og Guðríður Sturludóttir fundarritari. Þórunn Sigþórsdóttir
formaður lagði fram skýrslu stjórnar og Nanna Guðný Sigurðardóttir lagði fram reikninga fyrir veturinn 2025-2026.

• Dagskrá aðalfundar var skv. 4. gr. laga félagsins
• Kosning fundarstjóra og fundarritara
• Skýrsla stjórnar um störf hennar og starfsemi félagsins
• Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram
• Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning og afgreiðsla hans
• Lagabreytingar
• Starfsáætlun lögð fram til kynningar og afgreiðslu
• Kosning í stjórn félagsins
• Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
Sjá nánari upplýsingar um aðalfund 2026 í fundargerð á heimasíðu skólans.

Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér í stjórn Foreldraráðs veturinn 2026-2027:

• Margrét Ármann – í stöðu formanns
• Jóhanna Helgadóttir – í stöðu gjaldkera
• Guðríður Sturludóttir – í stöðu ritara
Inga Magnúsdóttir var skoðunarmaður reikninga árið 2025-2026.
Bæði stjórn Foreldraráðs og skipun skoðunarmanna var samþykkt einróma á aðalfundi 7. október 2026.

Skýrsla stjórnar 2025-2026
Fundir

Foreldraráð hélt þrjá formlega fundi á starfsárinu (frá 1. október 2025 – 30. september 2026), en sú hefð hefur skapast að allir meðlimir Foreldraráðsins eru boðaðir á fundi. Fundir voru haldnir 1. desember 2025 í Mathúsi Garðabæjar, 4. febrúar 2026 í fundarherbergi Verzlunarskólans og 2. september 2026 á sama stað, ásamt fjölda rafrænna samskipta.
Stjórnendur skólans hafa ávallt verið okkur innan handar og hafa sótt fundi með okkur sé þess óskað af Foreldraráðinu. Einn slíkur fundur var á árinu með Guðrúnu Ingu Sievertsen
skólastjóra og forseta NFVÍ, Óskari Breka , sem ræddu við foreldraráðið um félagslífið, kosningar í nefndir ofl.
Fundargerðir má finna á heimasíðu skólans ásamt skýrslu stjórnar.
Formaður Foreldraráðs eða staðgengill hans situr fundi með skólanefnd skólans reglulega yfir veturinn.

Viðburðir og fræðsla

Formaður Foreldraráðs eða staðgengill hans kynnir árlega félagið fyrir foreldrum á svokölluðu Nýnemakvöldi sem skólinn heldur fyrir foreldra nýnema í byrjun hvers skólaárs.
Helstu viðburðir Foreldraráðs eru foreldrakvöld með fræðslu og skemmtidagskrá. Tveir slíkir fundir voru haldnir á tímabilinu.
Fyrri var haldinn á haustönn þar sem kvöldið byrjaði á Aðalfundi foreldrafélagsins og í framhaldinu foreldrakvöld með fræðslu og gamanmáli. Var hann haldinn þann 8. október 2025
þar sem Sindri Sindrason fékk GunnIngu skólastjóra í spjall og var foreldrum boðið að senda inn spurningar fyrir fram sem farið var yfir á kvöldinu. Nemendur fluttu tónlistaratriði við góðan orðstír og fengu í staðinn styrki fyrir Gullið, Peysufatadaginn og Gala.
Ákveðið var að prófa að hafa seinna foreldrakvöldið með öðrum hætti en áður hefur verið og var það haldið í samvinnu við LúVí sem er útskriftarsýning nemenda listabekkjar.
Foreldrafélagið bauð upp á veitingar og fékk nemendur til að koma með tónlistaratriði eins og verið hefur á síðast liðnum foreldrakvöldum. Tókst þetta mjög vel og var almenn ánægja með
þetta fyrirkomulag.

Ballgæsla

Foreldraráðið stóð ballvaktir á böllum skólans og auglýsti eftir foreldrum til aðstoðar. Foreldraráðið skipar ballstjóra sem heldur utan um vaktir og skipulag. Halldór Hildimundarson
var í því hlutverki. Góð mæting foreldra er á ballvaktir. Voru vaktir á Nýnemaballi, Vælinu, Nemó, Peysufataballinu og Gullinu.

Gjafir og styrkir

Foreldraráðið styður þétt við bakið á edrúpotti sem er fyrir öll böll skólans, voru þau tvö í fyrra: nýnemaball og Nemó ball – félagslífsfulltrúar skólans halda utan um nemendur sem fara
í edrúpottinn. Gjafir edrúpottsins eru hugsaðar til að efla forvarnir í skólanum og voru þær veglegar eins og árið áður. Gjafirnar voru Bose heyrnartól, inneignarbréf í Kringluna, bíóveisla og pizzaveislur fyrir bekki þar sem flestir blésu í áfengismæli, hamborgarainneign, dineout, miðar á Verslóvælið og Nemó, Gullið, Peysó og Gala og matarkort sem skólinn lagði
til. Var þetta vel auglýst og voru viðbrögð nemenda mjög jákvæð. Valur tölvufræðikennari ákvað að nota auglýsingu fyrir edrúpottinn sem skólaverkefni þar sem nemendur úr ákveðnum
bekkjum hönnuðu plakat og valdi hann svo þrjú sem voru prentuð út og hengd upp út um allan skólann.
Hver árgangur hefur sinn eigin viðburð á vorönn, 1. bekkingar Gullið, 2. bekkingar Peysufatadaginn og 3. bekkingar Galakvöld. Styrkti foreldrafélagið öll árin fyrir þessa
viðburði og voru nemendur í staðinn með tónlistarviðburð á foreldrakvöldum foreldrafélagsins.
Foreldrafélagið styrkti vinning fyrir hönnunarsamkeppni nemenda varðandi veggspjald fyrir samskiptasáttmála Verzló.

Greiðsluseðlar

Valfrjálsir greiðsluseðlar voru sendir í heimabanka forráðamanna og voru heimtur góðar líkt og undanfarin ár. Þetta gerir foreldraráðinu kleift að styðja vel við ungmennin okkar hér í
skólanum, með þeim hætti sem talið hefur verið upp hér að ofan.

Fésbókarsíða

Foreldraráðið hefur nú haldið úti virkri fésbókarsíðu undanfarin ár. Markmið hennar er að gera störf foreldraráðsins sýnilegri, miðla fréttum og fróðleik eftir því sem við á. Enn fremur að
skapa vettvang til samráðs og jákvæðra skoðanaskipta foreldra. Foreldrafélagið ákvað í vor að prófa að vera einnig með fésbókarsíður árganga sem eru þannig að einhver einn úr foreldraráðinu heldur utan um árgangasíðuna árgangsins sem barnið hans er í , sér um að stofna hana og koma upplýsingum til foreldra. Telur foreldrafélagið að þetta sé betri leið til að koma upplýsingum beint til foreldra og einnig að auðvelda foreldrum barna í sama árgangi til að eiga samskipti.

Lokaorð

Ég vil þakka Foreldraráði fyrir mjög gott samstarf á skólaárinu sem er að líða. Einnig þakka ég stjórnendum skólans fyrir gott samstarf og leiðsögn sem og félagslífsfulltrúum skólans sem eru tengiliðir okkar við nemendafélagið. Einnig vil ég þakka foreldrum fyrir góða þátttöku á foreldrakvöldum.

Reykjavík, 7. október 2026
Þórunn Sigþórsdóttir
formaður Foreldraráðs