Febrúar 2026

4. febrúar 2026
Fundur settur af formanni kl. 17:20 og fundi slitið kl. 19:00.
Viðstaddir fundinn: Þórunn Sigþórsdóttir (formaður), Sunna Ósk Friðbertsdóttir (ritari), Nanna Guðný Sigurðardóttir (gjaldkeri), Elín Gréta Stefánsdóttir, Nanna Ósk Jónsdóttir, Margrét Ármann, Elín Ösp Rósudóttir, Sólveig Kr. Bergmann, Lilja Pálsdóttir.

Efni fundar

GunnInga skólastjóri og Óskar Breki formaður NFVÍ mættu á fundinn. Rætt var skipulag í kringum kosningar í nefndir NFVÍ og viðtölin um sæti í nefndum í kjölfar kosninga. Rætt var um hvort að nemendur á 3. ári sem eru að fara útskrifast ættu að kjósa í nefndir fyrir næsta ár. Óskar Breki sagði mikið lagt upp úr kosningavikunni áður en kosningar fara fram og taldi að 3. árs nemar myndu missa áhugann á að taka þátt ef þau fengju ekki að kjósa. GunnInga tók undir þetta og sagði mikilvægt að allir fengju að taka þátt í kosningum. Þá var rætt um viðtölin fyrir nefndir og nemendur sem sitja tvö til þrjú ár í nefndum. Óskar Breki og GunnInga telja að mikilvægast sé að þeir nemendur sem bjóða sig fram í nefndir hafi tíma til að sinna nefndinni og átti sig á vinnunni sem því fylgir. GunnInga segir frá því að það sé gerð nemendakönnun á hverju ári og meðal annars spurt út í hvernig nemendum líki félagslífið. Fyrir næstu könnun á að bæta við viðbótarspurningu ef fólk er ekki ánægt með félagslífið, hvað sé ekki nógu gott að þeirra mati. Skólinn getur svo unnið með þær niðurstöður og gert umbætur ef þörf er á.

Óskar Breki fer af fundi.

Efni frá GunnIngu

Búið er að draga út hvernig útskriftarárgangurinn skiptist í útskriftir kl. 12 eða 14. Upplýsingar sendar á nemendur.
Varðandi Vælið og Hörpu. Í skoðun sé að gera breytingar á Vælinu, mögulega skoðað að halda keppnina í íþróttahúsi og hafa svo ball. Foreldraráðinu líst vel á hugmyndir GunnIngu. GunnInga fer af fundi.

Gæsla á Nemendamóti, 19. febrúar nk.

Auglýst verður eftir foreldrum í foreldragæslu á Facebook. Halldór, ekki viðstaddur fundinn, sér um gæsluna, vesti o.fl.

Edrúpottur fyrir Nemendamót

Formaður segir frá því að tölvufræðikennarinn ætli að bjóða nemendum að gera plakötin fyrir edrúpottinn sjálf og muni hengja upp flottustu auglýsingarnar. Verðlaun voru rædd, svipað og áður. Bose heyrnatól, miði á Gala, Gullið og Peysó. Inneign í Kringluna og pizzaveisla fyrir þá bekki þar sem flestir blása.

Facebook hópar fyrir foreldra eftir árgöngum

Rætt að stofna Facebook hópa fyrir foreldra í hverjum árgangi sem er svo eytt eftir útskrift. Eitt foreldri úr hverjum árgangi mun stofna lokaðan hóp og senda tengil á skólann. Skólinn sendir svo tölvupóst á foreldra í hverjum árgangi og hvetur foreldra til að skrá sig í hópinn.

Foreldrakvöld – mars

Rætt um að halda foreldrakvöld í mars og hvort það ætti eingöngu að hafa tónleika frá nemendum sem vilja taka þátt og engin erindi. Foreldraráð tók vel í tillöguna. Mögulegir fyrirlestrar fyrir nemendur í boði foreldraráðs. Komu hugmyndir um að bjóða einum árgangi upp á fyrirlestur. Ekkert ákveðið, en hugmyndir ræddar.

Gjaldkeri

Gjaldkeri fór yfir yfirlit fjármála.

Reykjavík, febrúar 2026
Sunna Ósk Friðbertsdóttir
Ritari Foreldraráðs