Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Fundur settur af formanni kl.20 og slitið kl.21.30 Staðsetning fundar: fundarherbergi Verslunarskólans Viðstaddir: Þórunn Sigþórsdóttir (formaður), Nanna Ósk Jónsdóttir (ritari), JóhannaHelgadóttir (gjaldkeri), Halldór Hildimundarson, Sigríður Linda Vigfúsdóttir , Margrét Íris Ármann og Elín Gréta Stefánsdóttir.
Nýnemaball verður haldið 18. september 2025 í Víkinni, Víkingsheimilinu. Elín Gréta óskaði eftir því að hætta sem gæslustjóri og var Halldór tilbúinn að taka það starf að sér og er því nýr gæslustjóri. Auglýst verður eftir foreldrum í gæslu, auk þess sem að einhverjir úr stjórninni mæta. Rætt var um að halda áfram að hafa edrúpottinn veglegan, með Bose heyrnartólum, pizzaveislum, Búlluborgarainneign, inneign í matbúð, kort í Kringluna (lækka úr 15 þúsund í 10 þúsund – bæta í stað við búlluborgara), miða á Verzlóvælið.
Ákveðið var að hafa foreldrakvöldið og aðalfund 8. október í Bláa sal og vera ekki með dýra skemmtikrafta eða fyrirlesara heldur láta peninga foreldrafélagsins renna beint til nemendanna með því að hafa veglega edrúpotta, bjóða upp á fyrirlestra og styrkja Gala, Peysufatadaginn og Gullið og fá í staðinn nemendur til að koma með skemmtiatriði. Þórunn mun ræða við Halldóru félagslífsfulltrúa og fá hana til að hjálpa okkur að finna nemendur til að skemmta. Ákveðið var að kanna hvort hægt væri að fá GunnIngu skólastjóra aftur í spjall og hvort að Sindri Sindrason væri til í að ræða við hana. Voru foreldrar mjög ánægðir í vor þegar GunnInga og Jóhanna Vilhjálms tóku spjall.
Verzlunarskólinn á afmæli 16. október og verður 120 ára. Verður opið hús og afmælisveislu þann dag. Foreldrafélagið hafði áður ákveðið að gefa ekki gjöf heldur eins og að ofan segir setja peninga félagsins frekar beint til nemenda skólans.
Þrátt fyrir að Þórunn formaður hafi hvatt foreldra nýnema á nýnemakynningunni til að mæta á þennan fund þá mætti enginn og mun foreldrafélagið því auglýsa eftir nýjum foreldrum í stjórn á heimasíðu skólans.