Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
2. september 2026 Fundur settur af formanni kl.17 og slitið kl.18.30 Staðsetning fundar: fundarherbergi Verzlunarskólans Viðstaddir: Þórunn Sigþórsdóttir (formaður), Halldór Hildimundarson, Margrét Íris Ármann, Jóhanna Helgadóttir, Kristjana Pálsdóttir, Katrín Brynja Hermannsdóttir, Tom Nielsen, Guðríður Sturludóttir, Hlaðgerður Íris Björnsdóttir, Sigþrúður Ármann, Helga Lúðvíksdóttir, Kolbrún Björnsdóttir, , Hugrún Harðardóttir, Rakel Hlín Bergsdóttir, Harpa Pálsdóttir , Ragnhildur Sigurbjartsdóttir Björn Guðmundsson, Sólveig Þórarinsdóttir, Árdís Björk Ármannsdóttir.
Þórunn formaður byrjaði fundinn á því að segja frá starfi foreldrafélagsins síðastliðin ár.
Nýnemaball verður haldið fimmtudaginn 10. september 2026 í Víkinni, Víkingsheimilinu. Þar sem nú er mjög stór hópur foreldra sem hefur bæst við foreldraráðið verður trúlega nóg af fólki í gæslu, annars verður auglýst eftir foreldrum í gæslu. Ákveðið var að halda áfram að hafa edrúpottinn veglegan. Var rætt um að hafa jafnvel sér nefnd sem sér um vinninga fyrir edrúpott. Eins með gæslu, hugsanlega að hafa sér nefnd sem heldur utan um gæsluna. Halldór mun hætta sem gæslustjóri og mun Tom Nielsen taka við af honum.
Ákveðið var að stefna að því að hafa foreldrakvöldið og aðalfund 7. október í Bláa sal. Ákveðið var að vera ekki með dýra skemmtikrafta heldur fá nemendur til að sjá um skemmtiatriði eins og gert var á síðasta foreldrakvöldi og styrkja þau í staðinn á Gullinu, Gala og Peysufatadeginum. Rætt var um hvaða fræðslu væri spennandi að fá, hugmyndir um jákvæða sálfræði eða gervigreind. Ákveðið var að heyra í leikkonunni Kristínu Þóru Haraldsdóttur og athuga hvort hún bjóði upp á fyrirlestur um jákvæða sálfræði. Þórunn mun ræða við Halldóru félagslífsfulltrúa og fá hana til að hjálpa okkur að finna nemendur til að skemmta.
Rætt var um hverjir hefðu áhuga á að bjóða sig fram í embætti formanns, gjaldkera og ritara á aðalfundinum sem verður haldinn fyrir foreldrakvöldið. Margrét Íris Ármann mun bjóða sig fram í embætti formanns foreldrafélagsins, Jóhanna Helgadóttir í embætti gjaldkera og Guðríður Sturludóttir í embætti ritara.
Rætt var um fræðslu fyrir nemendur. Magnús Jóhann Hjartarson, sem er fyrrverandi nemandi í Verzlunarskólanum er með fyrirlestur um að kveikja neista hjá nemendum. Fólk var jákvætt fyrir því að fá Magnús fyrir nemendur.
Reykjavík, 2. september Margrét Íris Ármann f.h. ritara Foreldraráðs