Lög foreldraráðs

Lög þessi voru samþykkt á framhaldsaðalfundi foreldrafélags Verzlunarskóla Íslands þann 04. mars 2014.

Samþykktar breytingar á framhaldsaðalfundi foreldraráðs Verzlunarskóla Íslands þann 31. janúar 2023.

1. gr. Félagið heitir Foreldraráð Verzlunarskóla Íslands. Aðsetur félagsins er í Reykjavík.

2. gr. Tilgangur félagins er að stuðla að auknum gæðum skólans og að bæta jafnt almenn og einstaklingbundin skilyrði og aðstæður nemenda til menntunar og farsæls þroska.

Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því meðal annars að:

  • Að vera samráðs- og samstarfsvettvangur foreldra/forráðamanna.
  • Að stuðla að aukinni vitund foreldra/forráðamanna um forsjáarskyldur sínar og þekkingu þeirra á réttindum og skyldum sínum og barna þeirra.
  • Að vera bakhjarl skólans og auka áhrif foreldra/forráðamanna sem hagsmunahóps um bættan hag og stöðu skólans.
  • Að hvetja til aukins stuðnings, aðhalds og hvatningar foreldra/forráðamanna, nemenda og starfsfólks skólans.

3. gr. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagins. Hann skal halda árlega ekki seinna en í októbermánuði. Til fundar skal boðað á heimasíðu skólans og með tölvupósti til foreldra með dagskrá, með a.m.k. 7 daga fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum í atkvæðagreiðslu.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar um störf hennar og starfsemi félagins.
c) Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram.
d) Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning og afgreiðsla hans.
e) Lagabreytingar.
f) Kosning í stjórn félagsins.
g) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.

4. gr. Stjórn félagsins skal skipuð af þremur (3) foreldrum/forráðamönnum nemenda sem kosnir eru á aðalfundi til eins árs í senn. Kjörnir fulltrúar skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi. Stjórn félagsins stýrir félaginu í umboði aðalfundar í samræmi við lög þessi. Stjórnin skal halda gerðarbók þar sem bókuð eru öll mál sem tekin eru fyrir og allar ákvarðanir stjórnar. Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður úrslitum.

5. gr. Tekjur félagsins eru annars vegar styrkir, sem stjórn félagsins er heimilt að taka við frá opinberum aðilum og öðrum sem vil styðja félagi og starfsemi þess og önnur fjáröflun. Hins vegar eru tekjurnar valfrjáls félagsgjöld og er upphæð þeirra ákvörðuð á aðalfundi. Reikningstímabil og fjárhagsár félagsins er frá 1.október til 30. september ár hvert.

6. gr. Hagnaði af starfsemi félagins skal varið í þágu foreldra og nemenda skólans.

7. gr. Ákvörðun um slit félagins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til Nemendafélags Verzlunarskóla Íslands.

8. gr. Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi eða á framhaldsaðalfundi félagsins. Tillögur að breytingum þurfa að berast stjórn félagsins ekki síðar en 14 dögum fyrir auglýstan aðalfund. Tillögur til breytinga á lögum þessum, sem stjórn félagsins hyggst leggja fram, skal kynna um leið og boðað er til aðalfundar og á sama hátt.