3. fundur 2024 - 18. janúar

Fundur í skólaráði, haldinn á skrifstofu skólastjóra klukkan 12:20. 

Mættir:

Gísli Örn Bragason, Katrín Jónsdóttir, Gunnar Mogensen Árnason, Helga Vigdís Thordersen, Lóa María Jónsdóttir, Guðrún Inga Sívertsen og Þorkell H. Diego, sem ritar fundargerð. 

Dagskrá fundar: 
  • Erindi til skólaráðs. 
  • Kennslukönnun – spurningar (stofur, próftafla, þriðjudagspróf). 
  • Nefndarviðtöl.
  • Gleði- og forvarnardagurinn. 
  • Þriðjudagspróf og próftafla.
  • Skólaþing. 
  • Símafrí. 
  • Umgengni í skólanum. 
  • Önnur mál. 
Erindi til skólaráðs:

Engin formleg erindi borist til skólaráðs.  

Kennslukönnun:

Hugmynd kom frá gæðateymi skólans að setja inn spurningar í kennslukönnun er varða þær breytingar sem gerðar voru í haust eins og  stofuskiptingar, þriðjudagspróf og próftöflu lokaprófa. Skólaráði lýst vel á að spyrja um þessa þætti en óskar eftir að fá að lesa yfir spurningarnar er varða þessi atriði áður en könnunin er lögð fyrir.  

Nefndarviðtöl í nefndir NFVÍ:

Umræða um nefndarviðtöl og hvernig hægt er að gera þau jákvæðari upplifun fyrir nemendur skólans og ímynd hans. Fulltrúar nemenda í skólaráði fá það verkefni að skoða nýja útfærslu á nefndarviðtölum. 

Gleði- og forvarnardagurinn:

Dagurinn verður með sama sniði og í fyrra. Boðið verður upp á margvísleg fræðsluerindi og nemendur velja þrjá viðburði yfir daginn. Fulltrúar nemenda telja að fyrirkomulagið hafi heppnast vel í fyrra. 

Þriðjudagspróf og breytt próftafla lokaprófa:

Fulltrúar nemenda í skólaráði lýstu yfir ánægju með fyrirkomulagið. Engar athugasemdir hafa komið frá nemendum og frekar jákvæðar undirtektir við þessar breytingar. Sama fyrirkomulag verður núna á vorönn. 

Skólaþing:

GunnInga sagði frá styrk sem skólinn hefur fengið til að halda skólaþing undir yfirskriftinni “samtal á milli skólastiga”. Fulltrúar í skólaráði lýstu yfir ánægju með þessi áform um skólaþing og munu taka þátt í undirbúningi og framkvæmd. 

Símafrí í tímum:

Rætt var um símaboxin sem eru væntanleg í skólann. Fulltrúar nemenda í skólaráði lýstu yfir ánægju sinni með þetta skref hjá skólanum. Hugmyndin er að símabox verði í öllum kennslustofum og nemendur hvattir til að hvíla símann meðan á tíma stendur. 

Umgengni í skólanum:

Rætt um umgengni í skólanum og nemendur hvattir til að henda rusli sínu í ruslatunnurnar og flokka ruslið. Þá þarf að stoppa það að nemendur hendi munntóbakspúðum út um gluggana. 

Önnur mál:

Rætt um innihald íslenskuáfangans NB sem er kenndur á 3ja ári. Þá var rætt um valgreinar og mikilvægi þess að passa upp á að grunnáfanga sé lokið áður en valgreina áfangi sem er framhald tekur við.