Stefna VÍ í alþjóðasamskiptum

Stefna Verzlunarskóla Íslands í alþjóðasamskiptum  er að undirbúa nemendur fyrir fjölmenningarsamfélag nútímans og gefa kennurum og öðru starfsfólki möguleika á að auka víðsýni og faglega þekkingu.

Markmið skólans er að:

  • Auka gæði skólastarfsins og hvetja til fjölbreyttari náms- og kennsluhátta.
  • Nemendum á öllum brautum standi til boða að taka þátt í fjölbreyttu alþjóðlegu samstarfi.
  • Nemendum sé gert kleift að vinna með jafnöldrum sínum að fjölbreyttum verkefnum þvert á landamæri.
  • Opna augu nemenda fyrir möguleikum á framtíðarmenntun og störfum í alþjóðlegu umhverfi.
  • Bjóða kennurum og öðru starfsfólki upp á erlend námskeið, ráðstefnur, skólaheimsóknir og starfsmannaskipti við erlenda samstarfsskóla.

Síðast uppfært í október 2023