Stefna VÍ í upplýsingatækni

Verzlunarskóli Íslands leitast við að vera í fremstu röð í notkun upplýsinga- og tölvutækni. Meginmarkmiðið er að upplýsingatækni verði nýtt á markvissan hátt til að styrkja áherslur skólans í námi og kennslu. Áhersla er lögð á skapandi námsumhverfi sem eflir færni nemenda í notkun upplýsingatækni.

Markmið skólans er að:
  • Alls staðar innan skólans sé gott aðgengi að neti.
  • Öflug kerfisstjórn og tækniþjónusta sé fyrir hendi fyrir starfsmenn og nemendur.
  • Fylgjast grannt með þróun upplýsingatækni og -miðlunar sem nýtist í skólastarfi.
  • Nýjasta og besta tækni hvers tíma sé í notkun innan skólans.
  • Nemendur og starfsmenn hafi aðgang að nauðsynlegum tækni-búnaði í skólanum.
  • Allir kennarar við skólann búi yfir færni til að nýta upplýsingatækni í starfi sínu.
  • Skapa tækifæri fyrir kennara til að efla tölvufærni sína við miðlun kennsluefnis.
  • Kennarar nýti rafræn kennslugögn eins og kostur er og að próf og verkefnaskil verði sem mest í rafrænu formi.
  • Allir útskrifaðir nemendur við skólann hafi góða tölvufærni til að nýta við áframhaldandi nám og störf framtíðarinnar.
  • Nemendur og starfsmenn noti netið á ábyrgan og öruggan hátt.

Síðast uppfært í janúar 2022