Algengar spurningar

11. Meðferð ágreiningsmála

11.1. Leitast skal við að leysa ágreiningsmál innan skólans. Miðað er við að umsjónarkennarar og námsráðgjafi séu hafðir með í ráðum við meðferð ágreiningsmála sem varða skjólstæðinga þeirra.

11.2. Rísi ágreiningur milli nemenda, kennara og/eða annarra starfsmanna skólans og takist hlutaðeigandi ekki að finna lausn á málinu má vísa því til skólastjóra. Uni málsaðilar ekki niðurstöðu skólastjóra má vísa málinu til skólanefndar.

11.3. Telji nemandi, eða forráðamenn hans sé nemandi yngri en 18 ára, að brotið hafi verið á rétti nemandans, sbr. þessar skólareglur, þannig að ástæða sé til að bera fram kvörtun skulu þeir snúa sér til viðkomandi kennara, sviðsstjóra, umsjónarkennara eða aðstoðarskólastjóra og námsráðgjafa. Takist ekki að leysa málið tekur skólastjóri það til umfjöllunar og ákvarðar um viðbrögð.

11.4. Brjóti nemandi skólareglur er honum veitt skrifleg viðvörun áður en til áminningar kemur nema brotið sé þess eðlis að því verði ekki við komið, svo sem brot á almennum hegningarlögum. Fái nemandi áminningu skal hún vera skrifleg þar sem fram kemur:
·tilefni áminningar og þau viðbrögð sem fylgja í kjölfarið brjóti nemandi aftur af sér,
· að nemandanum sé gefinn kostur á að andmæla áminningu.

11.5. Brjóti ólögráða nemandi reglur skólans eru foreldrar/forráðamenn látnir vita um það. Við meðferð mála skal sérstaklega gæta ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, laga nr. 121/1989 um skráningu og meðferð persónuupplýsinga og upplýsingalaga nr. 50/1996.

11.6. Leitast skal við að afgreiða brot á skólareglum með skjótum hætti.