Algengar spurningar

4. Skólasóknareinkunn

4.1. Nemandi sem hefur 95,5 –100% mætingarhlutfall og að lágmarki 90% raunmætingu fær eina einingu fyrir mætingu eftir hverja önn. Þessar einingar, sem að hámarki geta orðið sex, eru þá umfram hinar hefðbundnu 207/205 feiningar sem þarf til stúdentsprófs af bóknámsbraut.

4.2. Mætingaskráning fer fram í upphafi kennslustundar í vefkladda. Nemendur sem ekki eru mættir við skráningu en mæta áður en 10 mín. eru liðnar af kennslustund fá seint. Nemendur sem mæta eftir þann tíma eða mæta ekki fá fjarvist. Ef kennari er ekki mættur þegar 5 mínútur eru liðnar af kennslustund skulu nemendur hafa samband við skrifstofu skólans og athuga hverju þessi fjarvera sætir. Ef nemendur vilja gera athugasemdir við fjarvistaskráninguna þá verða þeir að koma athugasemdum til umsjónarkennara eða viðkomandi kennara innan tveggja vikna.

4.3. Skólasókn, að frádregnum veikindum og leyfum skal vera 87% hið minnsta. Að öðrum kosti eiga nemendur ekki vísa skólavist á næsta skólaári. Sé skólasókn undir 87% í lok skólaárs getur skólinn ákveðið að bjóða nemendum skólasóknarsamning á næsta skólaári með skilyrðum um betri skólasókn en almennar reglur segja til um. Sé skólasókn ábótavant er veitt skrifleg áminning.

4.4. Skólasóknareinkunn og fjarvistarprósenta reiknast eins og sýnt er í töflunni hér að neðan:

Fjarvistarprósenta Skólasóknareinkunn
97,5-100% 10 ein feining
95,5-97,4% 9 ein feining
93,5-95,4% 8
90,5-93,4% 7
88,5-90,4% 6
86,5-88,4% 5
84,5-86,4% 4
81,5-84,4% 3
79,5-81,4% 2
<79,4% 1