Algengar spurningar

Áfangar í kennslukerfinu Moodle

Allir áfangar í fjarnámi við skólann eru kenndir í kennslukerfinu Moodle. Kennslukerfið er nokkurs konar skóli í netheimum, þar sem hver áfangi á sér samastað. Nemendur komast þar í samband við kennara áfangans og samnemendur. Þar eru vistuð ýmis námsgögn, svo sem textar, hljóðskrár, myndbandsskeið, námsáætlanir, gagnvirk verkefni og fleira.

Í sérhverjum áfanga er að finna:

  • Nákvæm námsáætlun sem er í samræmi við áfangalýsingu á netinu.
  • Vikuleg áætlun um yfirferð námsefnis, en hverri önn er skipt upp í tíu hluta og er gert ráð fyrir viku vinnu nemanda fyrir hvern hluta.
  • Nákvæm lýsing á verkefnum og skilatíma þeirra.
  • Gerð grein fyrir námsmati og má vægi námsþátta ekki víkja frá því sem fram kemur í áfangalýsingu í upphafi annar.
  • Umfjöllun um námstækni og próftöku.