Algengar spurningar

BÓKF2BT05 – Bókfærsla II (í boði fyrir alla nema viðskiptabraut)

Lýsing áfangans:

Í áfanganum læra nemendur að færa flóknara bókhald bæði dagbókarfærslur og uppgjör. Einnig læra nemendur um skuldabréf og verðtryggingu skuldabréfa. Kennsla byggist á innlögn kennara, umræðum, dæmatímum og verkefnavinnu. Lögð er áhersla á að nemendur séu sjálfstæðir í vinnubrögðum og geri sér grein fyrir eigin ábyrgð. Nemendur vinna mest sjálfstætt. 

Námsmat:

Verkefni og vinna nemanda yfir önnina ásamt lokaprófi.