Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Nemendur læra að gera upp bókhald út frá ófullkomnum upplýsingum og um sameiningu fyrirtækja. Nemendur læra að setja upp sjóðstreymi og taka tillit til skattareglna í uppgjöri. Einnig læra þeir að meta innra virði við sameiningu fyrirtækja. Kennslan byggist á innlögnum, umræðum, vinnutímum og verkefnavinnu. Lögð er áhersla á að nemendur séu sjálfstæðir í vinnubrögðum og geri sér grein fyrir eigin ábyrgð. Nemendur vinna mest sjálfstætt.
Í lok áfangans er lokapróf sem tekið er í Innu og gildir á móti hlutaprófum, verkefnum og ástundun nemandans á önninni.