Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Áfanginn ,Lífið í Köben’ miðar að því að veita nemendum dýrmæt úrræði og þekkingu um danska samfélagið og menningu. Nemendur munu fylgjast með þróun mála í Danmörku með því að lesa dönsku miðlana og greina helstu fréttir, sem stuðlar að dýrmætum lesskilningi um nútímasamfélagið. Einnig munum við lesa um lífið í dönskum háskólum og þá menningu sem þar ríkir.
Áfanginn mun veita nemendum mikilvægar upplýsingar um leiðir til að sækja um vinnu og nám í Danmörku, skrá sig inn í landið og hvernig SU kerfið virkar. Kynntir verða helstu háskólarnir í Kaupmannahöfn, svo sem CBS, DTU og KEA, auk lýðháskóla, en við munum einnig kynna okkur danska vinnustaði. Nemendur öðlast því bæði innsýn í danskt háskólaumhverfi og danska fyrirtækjamenningu. Leitast verður eftir því að fá fyrirlestur frá dönskum rekstraraðilum um tengt því síðarnefnda. Í áfanganum verður lögð áhersla á lesskilning, hlustun og tal, með það markmið að efla tungumálafærni nemenda í raunverulegum aðstæðum.
Áfanginn er símatsáfangi. Lokaeinkunn byggir á mati á virkni og verkefnaskilum þar sem færniþættirnir þrír, lestur, hlustun og tal, eru metnir jöfnum höndum.