Algengar spurningar

DANS2NS05 – danska II (í boði fyrir náttúrufræðibraut)

Lýsing áfanga:

Um bekkjarkennslu er að ræða og fer kennslan að mestu leyti fram á dönsku. Lögð er áhersla á að nemendur séu sjálfstæðir í vinnubrögðum, geri sér grein fyrir eigin ábyrgð, geti fylgst með framvindu í námi sínu og metið eigin færni. Nemendur vinna ýmist sjálfstætt, í pörum eða í hópum. Áhersla er á notkun upplýsingatækni og vinna nemendur að stærri verkefnum sem þeir gera grein fyrir bæði skriflega og munnlega í bekknum. Fimm þættir tungumálanáms eru þjálfaðir jafnt og þétt og er ætlast til að nemendur hafi öðlast hæfni B2 í lestri og ritun samkvæmt Evrópsku tungumálamöppunni. Í tali, samræðum og hlustun er hæfniviðmiðið B1. Í lok annar afhenda nemendur verkefnabók sína (Book Creator\Padlet) með helstu verkefnum annarinnar og gera grein fyrir efni hennar í munnlegu prófi.

Námsmat:

Símat.