Algengar spurningar

Ef nemandi fer utan sem skiptinemi á öðru ári er hægt að ná því upp með fjarnámi?

Með mjög góðu skipulagi gæti það vel gengið upp. Krakkarnir sem hafa farið út í 1/2 ár hafa gjarnan gert þetta, þ.e. tekið hluta námsins í fjarnámi svo þeir missi ekki af sínum árgangi – en hinir sem hafa farið í eitt ár seinka sér gjarnan um eitt skólaár. Annars er staða hvers nemanda skoðuð sérstaklega.