Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Inngangur að lífrænni efnafræði sem er undirstöðugrein fyrir læknisfræði, líftækni, lyfjafræði og fleiri greinar heilbrigðisvísinda, umhverfisfræði, verkfræði og efnafræði. Megináhersla áfangans er á byggingu og IUPAC nafngiftir helstu lífrænna efna og efnaflokka. Virkir hópar, rúmfræði sameinda og nokkrar helstu tegundir lífrænna efnahvarfa. Hefðbundin kennsla fer fram í kennslutímum, þar sem hvatt er til umræðu og fyrirspurna eftir því sem tilefni gefast til. Mikil áhersla er lögð á að vinna verkefni. Auk þessa eru verklegar æfingar í raungreinastofu. Nemendum er ætlað að tileinka sér og öðlast skilning á efni kennslutexta og viðbótarefni sem fram kemur í kennslustundum. Efni áfangans er til inntökuprófs í læknisfræði og sjúkraþjálfun við HÍ.
Lokapróf, annarpróf, verklegar æfingar, heimadæmi.