Algengar spurningar

Ég er búin með áfanga í fjarnámi, fæ ég hann metinn?

Til þess að fá áfanga metinn þarf nemandi að hafa tekið áfangann í framhaldsskóla, með lokaeinkunn sjö að lágmarki. Hægt er að sækja um að fá alla áfanga metna nema stærðfræði og íslensku. Allt nám sem nemendur taka í fjarnámi Verzlunarskólans er metið ef einkunnin er fimm að lágmarki.