Algengar spurningar

ENSK3HP05 – Enska, Harry Potter (í boði fyrir alla)

Lýsing á áfanga:

Í þessum áfanga er fjallað um bækur og kvikmyndir J.K. Rowling um Harry Potter. Farið verður yfir efni og persónur bókanna, verkefni úr þeim verða unnin og málefni skoðuð frá ýmsum sjónarhornum. Meðal annars verður unnið með eftirfarandi atriði:

a) áhrif á ungt fólk og menningu almennt
b) stjórnmál og samfélag: Hliðstæður í raunheimum
c) átök góðs og ills
d) kynjasjónarmið og minnihlutahópa
e) persónusköpun og bókmenntahugtök.

Valin bók verður lesin og efni hennar rætt. Horft verður á eina kvikmynd og verkefni unnið úr henni. Nemendur vinna mikið í hópum og áfanginn er að miklu leyti leikjamiðaður. Öll vinna í námskeiðinu fer fram á ensku. 

Námsmat: 

Unnin verða ýmiss konar verkefni svo sem ritunarverkefni, munnlegar kynningar og myndbandsverkefni, auk þess sem áfanga lýkur með skriflegu prófi úr valinni bók. Ætlast er til að nemendur taki virkan þátt í umræðum í kennslustundum og mun það vera ríkur þáttur í lokaeinkunn.