Algengar spurningar

ENSK3KV05 – Heimur kvikmyndanna (í boði fyrir alla)

Lýsing áfanga:

Horft er á og unnið með kvikmyndir á ensku á fjölbreyttan hátt og er heimur kvikmyndanna skoðaður frá ýmsum sjónarhornum. Unnið er í lotum þar sem fengist er við ólík áhersluatriði. Hugtök sem tengjast menningu og listum ásamt viðfangsefnum kvikmyndanna eru kynnt og unnið með þau. Farið er í bíó og gestir koma í heimsókn. Nemendur vinna fjölbreytt og skapandi verkefni í tengslum við efnið og nemendur og kennari ákveða í sameiningu hvernig námsmati er háttað og á hvaða kvikmyndir er horft. Öll vinna áfangans fer fram á ensku og lögð er áhersla á að efla getu nemenda til að tjá sig með umræðum. Áfanginn er símatsáfangi. 

Námsmat:

Áfanginn er símatsáfangi.