Algengar spurningar

ENSK3NV05 – Vísindaenska (í boði fyrir náttúrufræðibr.)

Lýsing áfanga:

Námið miðar að því að nemendur auki færni sína í enskri tungu og bæti bæði vísindaorðaforða og almennan orðaforða svo og málskilning. Nemendur eru þjálfaðir í ritun með ýmsum verkefnum sem tengjast vísindum. Einnig eru nemendur þjálfaðir í töluðu máli, m.a. með umræðum. Mikil áhersla er lögð á ábyrgð og frumkvæði nemenda og þeir fá tækifæri til að velja sér viðfangsefni skv. áhuga. Dæmi um slík viðfangsefni gætu verið gróðurhúsaáhrif, geimrannsóknir, líftækni, gervigreind o.s.frv.

Námsmat:

Námsmat er í formi símats. Sem dæmi um verkefni má nefna umræður, áhugasviðsverkefni og kvikmyndaverkefni.