Algengar spurningar

Fagstjóri

Hlutverk fagstjóra er að hafa umsjón með áföngum í sínu fagi og leiða samstarf kennara í þeim tilgangi að samræma kennslu og námsmat. Fagstjóri fylgist með og gætir þess að kennsla og námsefni uppfylli kröfur skólanámskrár.
Fagstjórar eru faglegir leiðtogar í sínum greinum/fögum. Helstu verkefni eru m.a:

  • Fagleg ábyrgð á námsgreinum/áföngum í dagskóla og fjarnámi.
  • Að fylgjast með nýjungum í kennsluháttum og taka þátt í og stuðla að þróunarstarfi.
  • Móttaka og stuðningur við nýja kennara.
  • Fagleg forysta og skipulagning á starfi viðkomandi námsgreina.
  • Umsjón með gerð og samræmingu kennsluáætlana í dagskóla og fjarnámi.
  • Yfirumsjón og ráðgjöf með prófasamningu og yfirferð prófa.
  • Að leggja fram tillögur að valgreinum í samvinnu við kennara.
  • Að vinna að kennsluskiptingu í samvinnu við stjórnendur eins og við á.
  • Að funda með stjórnendum um málefni námsgreinar/skólans.
  • Að koma með tillögu að innkaupum fyrir viðkomandi námsgrein/fag.
  • Að skipuleggja og halda a.m.k. mánaðarlega fundi með kennurum námsgreinar og halda fundargerðir.
  • Að taka saman í lok hvers skólaárs skýrslu um starfið í námsgreininni/faginu og skila til stjórnenda.
  • Að vera stjórnendum til ráðgjafar í ráðningarmálum.
  • Önnur verkefni sem tengjast námsgrein/fagi í samráði við stjórnendur.
  • Að bera ábyrgð á að námsgagnalisti sé uppfærður fyrir hverja önn í INNU.
  • Samskipti við bókasafn og bókaútgefendur/bókaverslanir vegna kennsluefnis og kennslubóka viðkomandi námsgreina.