Algengar spurningar

Félagsaðild

3. gr. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagins. Hann skal halda árlega ekki seinna en í októbermánuði. Til fundar skal boðað á heimasíðu skólans og með tölvupósti til foreldra með dagskrá, með a.m.k. 7 daga fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum í atkvæðagreiðslu.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar um störf hennar og starfsemi félagins.
c) Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram.
d) Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning og afgreiðsla hans.
e) Lagabreytingar.
f) Kosning í stjórn félagsins.
g) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.

4. gr. Stjórn félagsins skal skipuð af þremur (3) foreldrum/forráðamönnum nemenda sem kosnir eru á aðalfundi til eins árs í senn. Kjörnir fulltrúar skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi. Stjórn félagsins stýrir félaginu í umboði aðalfundar í samræmi við lög þessi. Stjórnin skal halda gerðarbók þar sem bókuð eru öll mál sem tekin eru fyrir og allar ákvarðanir stjórnar. Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður úrslitum.