Algengar spurningar

Forvarnafulltrúi

Við Verzlunarskólann er starfandi forvarna- og félagslífsfulltrúi. Hlutverk hans er m.a. að:

  • Vera í forsvari fyrir stefnumörkun og framkvæmd forvarna í skólanum.
  • Sjá um að til sé skrifleg stefna skólans í forvörnum.
  • Standa fyrir fræðslu (fyrir starfsfólk og nemendur ) um afleiðingar neyslu áfengis, tóbaks og ólöglegra fíkniefna.
  • Hafa náið samstarf við námsráðgjafa, nemendafélag, jafningjafræðslu, forvarnafulltrúa í öðrum skólum og fagaðila utan skólans.
  • Taka á móti vísbendingum ef grunur leikur á um vímuefnanotkun nemenda og veita upplýsingar um úrræði fyrir þá sem eru í vímuefnavanda.
  • Vera nemendum, starfsfólki og forráðamönnum til ráðuneytis.
  • Kalla saman forvarnateymi skólans.
  • Vinna að fjölbreyttu félagslífi með nemendum og skipuleggja umsjón og eftirlit með samkomum nemenda skólans.
  • Taka saman skýrslu um starfsemina í lok hvers skólaárs.
  • Forvarna- og félagslífsfulltrúi hefur trúnaðarskyldu gagnvart nemendum, starfsfólki og forráðamönnum.