Algengar spurningar

Forvarnir:

Áhersla á jákvæð samskipti í skólasamfélaginu og skýr stefna um að ofbeldi, einelti, kynferðisleg áreitni og kynbundin áreitni sé ekki liðin er lykilþáttur í forvörnum. Það er því mikilvægt að efla vitund allra í skólasamfélaginu um jákvæð samskipti og að þau séu einkennandi í öllu starfi skólans. Að skólinn sé eftirsóttur vinnustaður fyrir alla nemendur og starfsfólk og að hlýlegt og hvetjandi andrúmsloft sé til staðar þar sem gagnkvæm virðing sé ríkjandi. Í Verzlunarskóla Íslands er lögð áhersla á að:

  • Miðla þekkingu og efla meðvitund um ofbeldi, einelti, kynferðislega áreitni og kynbundna áreitni t.d. með fyrirlestrum og beintengingu við námsefni.
  • Starfsfólk sé vakandi og meðvitað um óæskilega hegðun og  neikvæð samskipti og bregðist við á viðeigandi hátt.
  • Stefna skólans  gegn ofbeldi, einelti, kynferðislegri áreitni og kynbundinni áreitni sé kynnt sem víðast og sérstaklega kynnt öllum nemendum og starfsfólki skólans.
  • Samskipti í skólasamfélaginu byggi á jákvæðni og virðingu.
  • Efla vitund nemenda um mikilvægi jákvæðra samskipta, t.d. með að umsjónarkennarar stofni til umræðu um jákvæð samskipti í sínum bekkjum.