Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Markmið áfangans er að veita nemendum hagnýta færni sem nýtist þeim í framtíðinni. Áhersla er lögð á að nemendur þrói færni sína með verklegum æfingum og raunhæfum verkefnum. Meðal efnis áfangans er samningatækni – þ.e. hvernig ná má betri samningum í mismunandi aðstæðum. Nemendur munu æfa sig í samningaviðræðum og keppa sín á milli um að ná sem bestu niðurstöðum.
Einnig verður fjallað um færni sem nýtist í hinu daglega lífi, svo sem hvernig auka má líkurnar á að fá draumastarfið, framkomu, markmiðasetningu, háttvísi og tímastjórnun. Áfanginn er að hluta persónumiðaður, sem þýðir að hver nemandi vinnur með eigin styrkleika og fær tækifæri til að bæta sig á þeim sviðum sem skipta hann mestu máli.
Í lok áfangans hafa nemendur fengið tækifæri til að þróa færni sína á ýmsum sviðum, sem styrkir stöðu þeirra bæði í atvinnu- og einkalífi.
Byggist á ástundun, verkefnum og umræðum. Áfanginn er próflaus.