Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa þegar tileinkað sér. Haldið er áfram að þjálfa nemendur jöfnum höndum í öllum færniþáttum tungumálsins í samræmi við evrópska tungumálarammann. Mikil áhersla er lögð á að auka orðaforða og að vinna markvisst með talað mál ásamt því að æfa hlustun og ritun. Áhersla er lögð á að nemendur geti notað tungumálakunnáttu sína við margvíslegar aðstæður daglegs lífs og að þeir geti aflað sér upplýsinga á sjálfstæðan hátt í gegnum helstu gagnaveitur. Auk þess öðlast nemendur skilning á þjóðlífi, tónlist og matarmenningu Frakka.
Áfanginn er símatsáfangi. Lokaeinkunn fæst með því að nota fjölbreytt námsmat sem endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna. Lokaeinkunn byggir á mati á virkni og verkefnaskilum þar sem færniþættirnir fjórir lestur, hlustun, tal og ritun eru metnir jöfnum höndum.