Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Áfanginn felst í því að nemendur mynda hópa, þróa sína eigin vöru og stofna fyrirtæki og reka. Vinna nemenda felst í því að halda utan um allt sem viðkemur fyrirtækinu en þau hafa nokkuð frjálsar hendur um viðfangsefni fyrirtækisins. Við rekstur fyrirtækjanna nota nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa hlotið í öðrum áföngum sínum svo sem bókfærslu, fjármálum og hagfræði. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og ábyrgð þeirra á eigin námi.
Nemendur taka þátt í keppni Ungra frumkvöðla, sem er keppni sem haldin er meðal framhaldsskólanna. Sigurvegarar keppninnar taka þátt í evrópukeppni Ungra frumkvöðla erlendis. Versló hefur margoft unnið keppnina innanlands á síðustu árum og hefur sigrað evrópukeppnina.
Áfanginn er símatsáfangi þar sem unnið er að rekstri fyrirtækisins alla önnina.