Algengar spurningar

HAGF3PS05 – Peningar sigra heiminn (í boði fyrir alla)

Lýsing áfanga:

Námskeiðslýsing: Hvað eru peningar? Hvernig urðu þeir til? Hvernig gátu þeir orðið ósýnilegir og birst okkur aðeins sem tölur á skjá? Vorið 2008 kostaði jarðarför í Zimbabwe eina milljón Zimbabwe-dollara. Hvernig getur verðbólga orðið svona rosaleg? Hvers vegna verða regluleg hrun á mörkuðum? Getur þekking á fjármálasögunni hjálpað okkur að sjá fyrir möguleg áföll? 

Í námskeiðinu Peningarnir sigra heiminn verður leitast við að svara þessum spurningum og mörgum fleirum. Þar verður sögð sagan af því hvernig fjármálakerfi heimsins eru í lykilhlutverki við framþróun mannlegs samfélags. Fyrirtæki og stofnanir verða heimsótt og gestir munu líta í kennslustundir. 

Námsefni:

Niall Ferguson: Peningarnir sigra heiminn. Fjármálasaga veraldarinnar og valdir leskaflar. 

Námsmat:

Áfanginn er símatsáfangi.