Algengar spurningar

HÖNN2SM05 – Stafræn hönnun I (í boði fyrir alla nema nýsköpunar- og listabr.)

Lýsing áfanga:

Í áfanganum verður unnið með forrit frá Adobe. Sérstök áhersla verður lögð á Photoshop og InDesign. Í áfanganum fá nemendur að kynnast grafískri hönnun og ferlinu í kringum hana. Í lok áfangans eiga nemendur að geta unnið með Photoshop við alhliða myndvinnslu og lagfæringar, sett upp bækling í Indesign og útbúið efni fyrir stafræna birtingu og prentun. Áfanginn er góður undirbúningur fyrir þá sem hafa áhuga á grafískri hönnun, auglýsingagerð og meðhöndlun efnis til birtingar. Áfanginn er símatsáfangi þar sem nemendur vinna verkefni yfir önnina. Ekkert lokapróf er í áfanganum.

Námsmat:

Verkefnaskil 75% og símat á önninni 25%.