Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Áfanginn er textílhönnunar- / fatahönnunaráfangi þar sem lögð er áhersla á endurhönnun. Hugmyndin er að gefa gömlum flíkum og hlutum nýtt líf. Nýttar eru fjölbreyttar aðferðir, nemendur læra t.d. að prenta á föt með einföldum hætti og lita og aflita. Nemendur nýta tæki í stafrænni smiðju og læra að nota vinylskera til að búa til límmiða á föt og hluti og prófa að lazerskera í efni. Engar forkröfur er í áfangann, sem þýðir að allir eru velkomnir sem hafa áhuga, það þarf ekki að hafa lært eitthvað í sjónlistum áður.
Áfanginn er verklegur símatsáfangi þar sem nemendur vinna bæði stór og smá verkefni og er áhugi, vinnuframlag og afurð það sem stuðst er við í mati verkefna.