Algengar spurningar

Hvernig fer nýnemavikan fram?

Nýnemar eru boðnir velkomnir með allskyns leikjum og keppnum milli bekkja sem nemendafélagið stýrir. Vikan endar svo yfirleitt á nýnemaferð út á land þar sem nýnemar skemmta sér saman eftir dagskrá sem skemmtinefnd stýrir. Starfsfólk skólans er með í för. Markmið vikunnar er að hrista saman nýnemana og veita þeim eftirminnilega og jákvæða upplifun fyrstu dagana í nýjum skóla.