Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Náms- og starfsráðgjafar við skólann eru þrír, Berglind Helga Sigurþórsdóttir, Kristín Huld Gunnlaugsdóttir og Sóley Þórarinsdóttir. Nemendur geta bókað tíma hjá náms- og starfsráðgjöfum með því að smella hér. Sóley heldur utan um nemendur á fyrsta ári. Kristín Huld heldur utan um nemendur á öðru ári og Berglind Helga heldur utan um nemendur á þriðja ári. Nemendaþjónustan er á fyrstu hæð skólans við aðalinngang (A). Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er að veita nemendum aðstoð í málum sem tengjast námi þeirra, náms- og starfsvali og í persónulegum málum. Nemendur, foreldrar/forráðamenn og kennarar geta leitað til náms- og starfsráðgjafa og fengið hjá þeim ráðgjöf og aðstoð við lausn ýmissa mála.